Smækka letur Stækka letur
Fréttir / Fyrirmyndar leiðtogahæfni í leikskólastarfi
14.6.2010 14:44 AA
Helga María Þórarinsdóttir
Laugardaginn 5. júní sl. bauð skólanefnd Akureyrarbæjar til uppskeruhátíðar í Listasafninu í fyrsta skipti, þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur, starf, áhuga og vilja. Helga María Þórarinsdóttir leikskólakennari fékk viðurkenningu fyrir fyrirmyndar leiðtogahæfni í leikskólastarfi.

Heimspekisamræður með leikskólabörnum
Helga María hefur verið mjög öflug við að halda vinnubrögðum barnaheimspekinnar á lofti í Lundarseli allt frá því að hún hóf störf þar 1999. Hún hefur átt frumkvæði í að þróa heimspekina áfram og notað til þess fjölbreyttar aðferðir og leiðir. Má þar m.a. nefna heimspekisamræður með leikskólabörnum um jafnrétti kynjanna.

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft.
Helga María vann af miklum áhuga og metnaði að jafnréttisverkefni Lundarsels - Það læra börnin sem fyrir þeim er haft - sem unnið var skólaárið 2008-2009. Hún hafði einnig frumkvæði að því að kennsluleiðbeiningar um jafnréttisverkefnið voru unnar út frá hugmyndafræði leikskólans um heimspeki. Hún hefur kynnt jafnréttisverkefnið víða og þannig stuðlað að því að aðrir kennarar fái góða kynningu á ákveðinni leið sem þeir geta auðveldlega nýtt sér til að efla vitund barna og starfsmanna um jafnrétti og jafnræði í leikskólum.

Fram að þessu, hefur lítið sem ekkert kennsluefni um jafnrétti verið útbúið til kennslu í leikskólum og er Lundarsel því að vinna ákveðið frumkvöðla starf hvað þetta snertir, undir dyggri stjórn Helgu Maríu. Hún er faglega sterk og mikill leiðtogi í innra starfi leikskólans. 

Til hamingju Helga María með viðurkenninguna og það frábæra og faglega starf með þú ert að vinna með leikskólabörnum.  


Jafnréttisstofa
Jafnréttisstofa
Þessi vefur er hannaður af D10.is
D10.is
Þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum
Jafnréttisstofa | Borgum v/Norðurslóð | 600 Akureyri
arnfridur[at]jafnretti.is | sími 460-6200 Hafðu samband

Fræðslufulltrúi Jafnréttisstofu
Bergljót Þrastardóttir

bergljot[at]jafnretti.is Jafnréttisstofa Borgum v/ Norðurslóð sími 460-6200

Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla
Á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, svo sem í fjölskyldu og atvinnulífi.

Þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum

Samstarfsverkefni Reykjavíkur, Akureyrar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Jafnréttisstofu, félags- og tryggingmálaráðuneytisins sem miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónarmið í leikskólum og grunnskólum.

Helga Helgadóttir
MA ritgerð

"...drengir og stúlkur hugsa ekki á sama hátt um störf. Náms- og starfsráðgjafar þurfa að vera meðvitaðir um að það er mögulegt og jafnframt æskilegt að hafa áhrif á þessa hugsun."