Smækka letur Stækka letur
Fréttir / Jafnréttismál í skólastarfi þarf að taka fastari tökum
10.6.2010 10:55 AA
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð

Guðný Guðbjörnsdóttir


Guðný Guðbjörnsdóttir
Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ segir að styðja þurfi „kennara í kennaramenntuninni, aðra kennara og skólastjórnendur í að útfæra ákvæði 23. greinar jafnréttislaga sem segir að á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, svo sem í fjölskyldu- og atvinnulífi.” Guðný telur einnig mikilvægt að fjallað sé „markvisst um jafnrétti, kynferði og skólastarf bæði í skyldu- og valnámskeiðum og í sem flestum námsgreinum í 5 ára kennaramenntun.“

Kennaramenntun, jafnrétti, kynferði og skólastarf
Síðast liðið haust tók Guðný Guðbjörnsdóttir prófessor við HÍ saman yfirlit yfir stöðu mála hvað varðar kennaramenntun, jafnrétti, kynferði og skólastarf auk þess sem hún skoðaði íslenska og erlenda umfjöllun um efnið. Í framhaldinu setti Guðný fram hugleiðingar sínar og tillögur um aðgerðir.

Guðný segir að bæði landslög og umræðan síðustu ár krefjist þess að jafnréttismál í skólastarfi verði tekin fastari tökum. Hún veltir m.a. fyrir sér hvernig bæta megi kennaramenntunina þannig að vel verði að þessum málum staðið. Menntun til Jafnréttis kynja og menntun kennara er fyrirsögn á áhugaverðu innleggi Guðnýjar inn í samræðuna; Kennaramenntun í deiglu.

Kennaramenntun í deiglu
Á grundvelli laga sem samþykkt voru frá Alþingi árið 2008 skal kennaramenntun á öllum skólastigum ljúka með meistaragráðu frá og með júlí 2011. Í kjölfar lagasetningarinnar hóf Menntavísindasvið Háskóla Íslands undirbúningsvinnu vegna þessara fyrirhuguðu breytinga. Einn liður í þeirri vinnu var fundarröð með það að markmiði að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í umræðunni og að kynna áætlanir skólans varðandi uppbyggingu námsins. Kennaramenntun í deiglu - fundaröð Menntavísindasviðs má finna hér.


Jafnréttisstofa
Jafnréttisstofa
Þessi vefur er hannaður af D10.is
D10.is
Þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum
Jafnréttisstofa | Borgum v/Norðurslóð | 600 Akureyri
arnfridur[at]jafnretti.is | sími 460-6200 Hafðu samband

Fræðslufulltrúi Jafnréttisstofu
Bergljót Þrastardóttir

bergljot[at]jafnretti.is Jafnréttisstofa Borgum v/ Norðurslóð sími 460-6200

Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla
Á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, svo sem í fjölskyldu og atvinnulífi.

Þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum

Samstarfsverkefni Reykjavíkur, Akureyrar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Jafnréttisstofu, félags- og tryggingmálaráðuneytisins sem miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónarmið í leikskólum og grunnskólum.

Helga Helgadóttir
MA ritgerð

"...drengir og stúlkur hugsa ekki á sama hátt um störf. Náms- og starfsráðgjafar þurfa að vera meðvitaðir um að það er mögulegt og jafnframt æskilegt að hafa áhrif á þessa hugsun."