Verkefnisstjóri
Arnfríður Aðalsteinsdóttir
arnfridur[at]jafnretti.is Sími 462-6200 / 460-6208
Arnfríður Aðalsteinsdóttir var ráðin verkefnisstjóri þróunarverkefnisins
Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum 1. apríl 2008. Starfstími verkefnastjóra miðast við 1. apríl 2008 til 1.júní 2009.
Arnfríður er með B.A. próf í félagsfræði frá Háskóla Íslands.
Kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri.
Diplóma í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands.
Er í M.A. námi í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands.
Arnfríður hefur kennt bæði við grunn- og framhaldsskóla og sinnt námsráðgjöf.
Hlutverk verkefnastjóra Verkefnastjóri heyrir undir Jafnréttisstofu og er staðsettur þar. Verkefnastjóri vinnur að því í samráði við stýrihóp verkefnisins að ná settum markmiðum verkefnisins.
Helstu verkefni eru að:
1. Halda utan um undirbúning og skipulag verkefnisins.
2. Að móta verkefnið.
3. Útvega fjármagn fyrir framkvæmd verkefnisins.
4. Afla tengsla og upplýsinga fyrir verkefnið.
5. Bera ábyrgð á framkvæmd og útfærslu verkefnisins.
6. Að vera tengiliður við tilraunaskóla.
7. Kynna verkefnið.
8. Skipuleggja fundi stýri- og verkefnahóps.