Úr viðjum vanansÚr viðjum vanans er lokaverkefni Höllu Gunnarsdóttur við Kennaraháskóla Íslands en hún útskrifaðist þaðan árið 2003. Síðar það sama ár hlaut verkefnið styrki, m.a. frá Landsbankanum, Íslandsbanka, KB-banka, Heklu og ESSO, til að heimsækja skóla á landsbyggðinni og flytja fyrirlestur fyrir kennara um efnið. Halla ferðaðist um landið í þrjá mánuði og kynnti verkefnið og að auki hefur hún flutt fyrirlestra í nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu Í það heila hafa kennarar úr ríflega fimmtíu grunnskólum hlýtt á fyrirlesturinn.
Verkefnið miðar að fræðslu fyrir kennara um kynferðislegt ofbeldi auk þess sem settar eru fram tillögur af kennsluefni um þetta viðkvæma málefni. Verkefnið hlaut ágætiseinkunn og sagði meðal annars í umsögn um það: „Tímabært og kjarkmikið brautryðjandaverk hvað varðar jafnréttisnámsefni um kynferðislegt ofbeldi.“ Leiðsögukennari var Margrét Pála Ólafsdóttir.
Því miður er það svo hérlendis sem í öðrum löndum að óhugnalega mörg börn eru beitt kynferðislegu ofbeldi. Óbirt íslensk rannsókn leiddi í ljós að 23% stelpna og 8% drengja eru misnotuð kynferðislega fyrir 18 ára aldur.
Það þýðir að í þrjátíu barna bekk með jöfnu kynjahlutfalli mætti ætla að þrjár til fjórar stúlkur og einn drengur séu fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis. Auk þess er mörgum íslenskum unglingum, aðallega stúlkum, nauðgað á ári hverju. Vegna þeirrar staðreyndar að skömmin býr hjá fórnarlambinu frekar en ofbeldismanninum er það svo að fæst þessara vandamála rata upp á yfirborðið.
Tilgangurinn með verkefninu er að fræða kennara um þennan erfiða málaflokk enda er grunnskólinn eina stofnunin sem hefur möguleika á að ná til heilu kynslóðanna. Með bættri fræðslu má greiða þolendum leið til þess að segja frá ofbeldi sem þessu og um leið koma skýrum skilaboðum á framfæri til hugsanlegra gerenda.
Halla býður enn upp á fyrirlestur fyrir grunnskólakennara eða aðra sem áhuga hafa. Fyrirlesturinn tekur eina og hálfa klukkstund að meðtöldum umræðum. Farið er yfir umfang og eðli kynferðislegs ofbeldis, lög um tilkynningarskyldu fagstétta og lagðar fram hugmyndir um hvernig kennarar geta staðið að kennslu um kynferðislegt ofbeldi. Fyrirlesturinn kostar 25 þúsund krónur.