Hörðuvellir
”Að hafa gaman og láta okkur líða vel” með þessum einkunnar orðum skólans höfum við á leikskólanum Hörðuvellir valið að nálgast viðfangsefni okkur hverju sinni. Það er trú okkar að við sem höfum gert leikinn að kennsluaðferð okkar, verðum að muna eftir því að hafa gleðina og leikinn að kjarna alls starfs okkar. Þannig viljum við einnig nálgast þetta verkefni.
Markmið okkar er að jafna hlutfall kvenna og karla í umönnun og kennslu. Að ýta undir það að allir fái að njóta sín eins og þeir eru óháð kyni. Að stuðla að virkri og lifandi umræðu um gildi þess að hafa bæði karla og konur í kennslu og ummönnun og að það sé hluti af starfsmannastefnu skólans.
Verkefnalýsingu skólans má finna hér.